Iguazu
31. október 2006 klukkan 03:22
Hum, sjŕ fossana Brasilíu megin, fara svo yfir til Argentínu og sjá thá og halda svo áfram... thad var sem sagt planid en eins og oll gód plon sem eitthvad er varid í thá breyttist thetta :)
Vid komum til fossanna klukkutíma of snemma :S og var klukkan thá 05.30, settumst nidur og bordudum smá nesti. Skelltum okkur sídan af stad ad sjá thessa margumtoludu fossa, sem eru jú 275 talsins. Humm thegar thangad var komid var ekki búid ad opna, sem thurfti nú ekkert ad koma okkur á óvart thar sem vid komum thangad med sama straetó og starfsfólkid :D Fossarnir "opnudu" svo klukkan 9.00 svo vid thurftum bara ad bída thar í um 30mín og thad tók okkur heilan klukkutěma ad skoda náttúruundrid og safnid á stadnum! Vid vorum KANNSKI pínu lítid pirradar í skapinu eftir ad hafa verid í 22 klukkustunda rútuferd og yfir ad hafa thurft ad kvedja Ríó... en tókum thetta á húmornum, enda mosquito bitin farin ad pirra mig alvarlega. (Hugsudum sem sagt med okkur: Ferdudumst vid virkilega í 22 klst í rútu fyrir THETTA :( ) Innritudum okkur á hostel med sundlaug (kall med sólgleraugu) og bordudum "hálfmána" pizzu sem reyndar var heil pizza med thykku lagi af osti yfir (sarcastic smiley) og fórum sídan og fundum laekni. Hann taladi thessa líka fínu portúspaensku og ég fékk 2 tegundir af toflum og svo krem, sem allt thraelvirkar :D (Samt med ógedslega faetur eins og er... thid sem sáud mig eftir sídustu Mexíkóferd vitid hvad ég á vid, samt ekki jafn morg bit). Um kvoldid ákádum vid sídan ad slaka adeins á og horfa á sjónvarpid á hostelinu. Thad sátu nokkrir strákar í sófunum og voru nýbúnir ad setja DVD í taekid svo vid bara tylltum okkur hjá theim, í okkar sakleysi og byrjudum ad horfa á myndina. Skondin mynd... 2 bandarískir strákar á bakpokaferdalagi um Evrópu... íslenskur strákur med theim... hey, en snidugt... fyrirgefidi en HVADA MYND ER THETTA EIGINLEGA (hraeddur smiley) vid vorum óafvitandi farnar ad horfa á Hostel, sem leikstýrt var af eingum odrum en Quinten Tarantino og er vaegast sagt hryllingsmynd allra, hvad thá bakpokaferdalanga... (já, Sammi, ef thú ert ad lesa... thad er rétt ég sá Hostel, thrátt fyrir ad aetla ALDREI ad sjá hana :S) Fyrir thá sem hafa áhuga á ad vita thad er sídan verid ad mynd Hostel 2 á Íslandi thessa dagana :S
Daginn eftir thessa mjog svo óvaentu sjónvarpsreynslu thá skelltum vid okkur bara út á sundlaugarbakkann og lágum í sólbadi, lásum og lékum okkur í sundlauginni :) Fórum sídan ad fá okkur ad borda.... (hum, thad mun orugglega enginn thekkja okkur heima í desember thví Helena hefur lést en ég fitnad :S ) og sídan endudum vid á búdarrápi thar sem Helena keypti sér geggjad flottan kjól, reyndar ekki bleikan en samt mjog flottan. Hún er algjor seńorita í honum skal ég segja ykkur ;) og thar sem hún var komin med nýjan kjól í hendurnar sagdi hún ad sjálfsogdu já vid bandarísku strákana 3 (Chris, Mike and John) sem spurdu okkur hvort vid vildum koma med theim á djammid um kvoldid :) Vid spurdum svo Fernando, einn af starfsfólki hostelsins, hvar "heitasti" stadurinn vaeri og kom hann med okkur á ono. Thar var sú lengsta rod sem ég hef á aevinni séd og greinilegt ad thetta var stadurinn til ad vera á! Eftir langa bid komumst vid nálaegt adgongudyrunum en thá var okkur skipt upp í 2 hópa, vid stelpurnar (hún Lea frá Thýskalandi slóst med í hópinn) vorum látnar fara inn um einhvern VIP inngang, okkur rétt kort svona eins og kreditkort nema merkt klúbbnum. Inni var sídan hann Ratto ad spila, einn uppi á svidi med gítarinn og ekkert nema por á risastóru dansgólfinu :S Loksins fundum vid svo strákana en samt ekki eftir ad hafa komist ad thví ad á svona stodum horfir madur ekki í augun á strákum nema vilja fá koss frá theim... sem sagt haettulegur stadur fyrir saetar stelpur frá Íslandi sem brosa til allra medan thaer horfa í augun á vidkomandi :S Loksins fundum vid sídan strákana... thier voru uppi og thegar vid aetludum ad fara til theirra thá máttum vid thad ekki thar sem vid vorum ekki med armbond :S their koma á endanum nidur og var voda gaman, hehem, ad reyna ad dansa vid uppáhalds tónlistina okkar Helenu... vaemid gítarspil sem var sídan leyst af hólmi med teknó tónlist :S fórum fyrstar heim og fundum í fyrsta skiptid í ferdinni fyrir aldursmuni!
Fostudagurinn fór í letikast thar sem stráknum á hostelinu gekk ekkert vid ad fá upplýsingar um Paraguay og bátsferdina sem vid vorum ad spá í og ákvádum vid thess vegna ad skellt okkur á laugardeginum yfir til Argentínu og sjá fossana theim megin frá. Sem var vaegast sagt frábaer ferd :D Voknudum á sidsamlegum tíma og skelltum okkur med straetó yfir landamaerin. Thar sem thad var vel heitt, eda um 45şC, thá ákvádum vid ad bjór vaeri vid haefi. Thar med var dagurinn byrjadur... verdirnir vid adgangshlidid heimtudu bjórinn sem adgangsfé en fengu hann thó ekki, heldur bara vonsvikin bros og slepptu okkur med thau. Sídan héldum vid ad litlum kofa thar sem verid var ad selja bátsferdir um fossana. Thar byrjudu starfsmennirnir ekki á ad bjóda gódan daginn heldur sogdu okkur ad vid vaerum vondar... otandi svona bjór framan í thá... svona var thetta ofbodslega heitur og fallegur dagur ad thad voru allir sammála um ad thetta vaeri gód hugmynd :) Vid skelltum okkur svo í frumskógarferd í jeppa thar sem fallegt fidrildi kom og settist á hendina á Helenu, grein féll nidur af himnum í jeppann rétt fyrir aftan okkur og ad lokum kom stór engispretta hoppandi á mig... fararstjórinn sagdi mér ad vera bara alveg róleg, hún bordi bara fot og hjálpadi mér sídan ad losna vid hana. Thá erum vid komin ad bátsferdinni... thvílík snilld :D spíttbátur upp á thar sem gert var í thví ad taka skemmtilegar beygjur á ánni svo madur kastadist svona temmilega til í saetinu. Farid var ad fossunum, sem eru mun fallegri svona nálaegt og svo var thad sturta! Their fóru med okkur undir fossana svo vid rennblotnudum og thad ekki einu sinni heldur thrisvar sinnum (tóku aukaferd thví thad var svo skemmtileg stemmning í hópnum). Thegar komid var í land glottum vid Helena illilega... allur hópurinn hafdi nefnilega horft á okkur undrunar augum thegar vid fórum úr ollu nema bikiníunum... tókum meira ad segja Speedo handklaedi med okkur (takk Elín). Endudum daginn svo á ad fá okkur ískaldan Guilmes og blondu af grilludu kjoti a la Argentína.
Erum núna staddar í litlum bae sem heitir Resistencia og erum á leidinni til Gral.Guemes og thadan til La Quiaca, allt í Argentínu og á leidinni til Bólivíu. Fórum í gaermorgun frá Brasilíu til Ciudad del Este, Paraguay, í leigubíl med 3 strákum (theim Tommy and Arndt frá Finlandi og Jan frá Thískalandi) jebb tródum okkur ollum inn og yfir landamaerin, adeins 6 stykki í venjulegum leigubíl framhjá fullt af loggum, hermonnum og sídast en ekki síst landamaeravordum og fengum ekki svo mikid sem eina athugasemd. Svona eru hlutirnir odruvísi hérna í sudur ameríku. Thegar thangad kom fórum vid svo beint upp í rútu sem var á leidinni til Asuncion, sem er hofudborg Paraguay. Sú ferd tók 11 klst og thar kvoddum vid finnsku strákana og héldum áfram med Jan hingad en vid komum klukkan 1 í nótt, sváfum á hóteli og erum ad bída eftir naestu rútu sem er alveg ad fara svo...
Sakna ykkar allra.
Mamma: flott hjá thér ad skrifa á síduna, mjog stolt af thér ;)
Lilja: gott ad vita af gódum mat og gódum bedda thegar madur kemur heim, maeti med vino tinto ;)
Rósa: sakna thín líka og ykkar allra...
Nafna: hugsa til ykkar heima í kuldanum, passadu vel uppá Dag :)
Hrafnhildur Lilja
estrella
Helena og Hrafnhildur