Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

'A lifi... Still alive

18. nóvember 2006 klukkan 05:28
Vildi bara lata vita af thvi ad vid erum enntha a lifi... erum i Cusco, Peru og vorum ad koma ur 3ja daga River Rafting ferd. Skrifa meira seinna. Farin ad sofa. Just wanted everyone to know we are still alive... we are in Cusco, Peru and we just came back from a 3 day River Rafting tour. Write more later. Gone to bed. Hrafnhildur Lilja estrella
Helena og Hrafnhildur
Karvelio skrifar ...
Gott að vita af því :)

Nokkuð viss um að það var SVAÐAlegt í Raftinginu, skálum fyrir því :)
19. nóvember 2006 klukkan 02:36
Eva skrifar ...
Vá maður...
3 daga ferð???

´ff púfff
19. nóvember 2006 klukkan 03:02
Alvilda skrifar ...
hæ sætu ferðalangar! sorry hvað ég er búin að vera léleg í að kvitta......!
gaman að skoða myndirnar....! ;) hlakka til að lesa næstu færslu! :)
love you.....
20. nóvember 2006 klukkan 16:40
Hrabba skrifar ...
 
Hæ skvísur!

Pufff, mig dreymdi aðra ykkar í nótt ( nefni ekki nafn)
En allavega farið báðar varlega því sú sem ég dreymdi kemur ekki einsömul heim, í draumnum sá ég litinn grisling :)
Ætli ég sé berdreymin ??? hummmm
Draumurinn var svo skýr að ég var heil lengi að spá hvort mig var að dreyma eða ekki :)
20. nóvember 2006 klukkan 21:20
Halldór skrifar ...
 
Geðveikt gaman gæti ég trúað.
Ég er enn á líf sjálfur. Skólinn er samt þungur og prófin að byrja. Vild ég væri þar sem þið eruð núna.

Hlakka til að heyra meira.
21. nóvember 2006 klukkan 02:02
Lilja blómarós skrifar ...
 
Hæ sætu skvísur
Langt síðan ég hef komið inn og lesið ferðasögu. Dagskráin að þéttast í skólanum. Lokasprettur næstu tvær vikurnar. Frábært að sjá myndirnar.... Hjálpa reyndar ekki til við að reyna að öfurnda ykkur ekki. Hér er allt á kafi og fólk að moka bílana sína út úr stæðum á morgnana. Rassaþotuveður..
Hafið áfram svona gaman og verið duglegar að lofa okkur að fylgjast með.
besos y bracos
Lilja blómarós
21. nóvember 2006 klukkan 03:30
Þóranna skrifar ...
 
Hæ elsku Hrafnhildur,
Frænka þín var búin að hringja til þess að breyta banka upplýsingunum þínum en ég er búin að týna miðanum :-s
Væri voðalega gaman að geta borgað þér, hvað, eru þetta einn eða tveir ma´nuðir?? Endilega sendu mér meil og ég læt leggja inn á þig undir eins!!!!
Skemmtið ykkur æðislega vel!!!

Kveðja
Þóranna
21. nóvember 2006 klukkan 17:40
Rósa María skrifar ...
hei sætastar. Hlakka til að lesa eitthvað nýtt frá ykkur. en allavegna þá er bara það sama að frétta herna. Kíkið endilega á nýju síðuna mína.
22. nóvember 2006 klukkan 23:44
Rósa sjálf skrifar ...
Sælar elskurnar, vonandi gengur allt vel hjá ykkur. Það er alveg ógeðslega kallt hér á landi og endalaust rok hérna í kef. Hlakka allavegna rosa til að sjá ykkur!!!!


HVENAR KOMIÐ ÞIÐ HEIM AFTUR?????


Bestu kveðjur Rósa...... Kossar og knús
26. nóvember 2006 klukkan 15:03
Hanna skrifar ...
Sælar skvísur.

Eruð þið ekki örugglega enn sprelllifandi þarna útí heimi?
Við erum orðin soldið óþolinmóð hérna, viljum fá að heyra frá ykkur .. hehe =)

Vonandi er gaman hjá ykkur, farið varlega sætastar =)

Kv. Hanna Stella.
P.s. það er allt á kafi í snjó hérna, bara gaman =)
27. nóvember 2006 klukkan 23:27
Karvelio skrifar ...
Bara eitt lítið halló svo við heima á klakanum vitum að þið eruð heilar á húfi :)
Mayo las estrellas encuentran su manera casera, con seguridad y rápidamente.
28. nóvember 2006 klukkan 15:21
Hrafnhildur skrifar ...
Sælar gellur:)
Er þetta nokkuð eins og í Hostel að Íslensku ferðalangarnir hverfa bara sporlaust? By the way Nafna ég er stolt af þér að hafa horft á hana ekki er ég svo huguð! Láttu nú vita af þér svo ég viti að allt er okay hjá ykkur.
Góða skemmtun og hlakka til að sjá þig um jólin:)
Kossar og knús
Nafna
28. nóvember 2006 klukkan 18:30
Rósa skrifar ...
Halló ég er líka ein af þeim sem er farin að hafa áhyggjur. Farið nú að skrifa eða eitthvað. Gefa allavegna smá merki um að þið séuð ok. Love u og farið mjög varlega
28. nóvember 2006 klukkan 19:15
Hanna skrifar ...
Jæææja stúlkur mínar...

Ég ungfrú taugaveiklaða er orðin ansi smeik um ykkur :/
Plís viljið þið láta vita af ykkur, það er svo vont að hafa svona áhyggjur.

En ég vona að það sé bara svona skemmtilegt hjá ykkur að þið viljið ekki eyða tíma í okkur hin.. hehehe =)

EN endilega látið vita af ykkur áður en ég míg í brækurnar hérna heima á fróni..

Love You,
Hanna systir (Hrafnhildar)
28. nóvember 2006 klukkan 23:30
Vildi bara segja að ég hlakka til að sjá þig og vonandi skemmturu þér vel.
29. nóvember 2006 klukkan 01:05

Skrifa athugasemd

Heimkoma

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit