Sorgin ber að dyrum - When sorrow came knocking
23. september 2008 klukkan 18:41
Langt er síðan eitthvað var ritað síðast á þessa síðu. En það hefur svo mikið búið að vera gerast að við, stjörnurnar, höfum ekki gefið okkur tíma til þess. En núna er sá tími kominn...
Ég sá þessa færslu þegar ég skráði mig inn á síðuna núna, lengra var ég ekki komin með færslu sem átti að lýsa seinni hlutanum á ferðinni góðu til Suður Ameríku. Þrátt fyrir góðan ásetning þá einhverra hluta vegna kláraði ég aldrei... og núna veit ég ekki hvort ég muni nokkurn tímann klára.
Við vorum tvær stúlkur sem náðum saman fyrir mörgum árum. Og árin liðu og tímarnir breyttust en vinátta okkar var alltaf eins, einlæg og sönn, en núna skyndilega er komið að kveðjustund. Alltof fljótt, áratugum of fljótt.
Hvernig get ég kvatt þig, þú sem ert helmingurinn af mér.. saman gátum við gert allt sem við einsettum okkur... Ég á eftir að sakna þín meira en orð fá lýst.
Ég ætla að biðja fyrir mér því ég veit að þannig kemst ég nær þér aftur. Elsku hjartans hjartað mitt ég veit að þú ert komin á góðan stað og þegar minn tími kemur verður þú í klappliðinu að taka á móti mér.
En þangað til, vertu sæl elsku Liljan mín og takk fyrir allt og allt
Te quiero con todo mi corazón.
kveðja
Helena
estrella
Today came with sad news, bad news. Lilja is gone, she was taken from us in the prime of her life.
Dear friends, she will be missed.
with a sad, broken heart

Helena og Hrafnhildur
Mig langaði svo að kíkja á þessa síðu aftur.
Ég hugsa mikið til þín,
og mér þykir vænt um þig.
Þú munt alltaf eiga stað í hjörtum okkar Lena mín.
Kv. Hanna Stella..
Ég er svo heppin að hafa átt hana að og að eiga hana (að handan) og þig að alla daga.
Elska ykkur báðar svo mikið og eigið þið alltaf stað í hjarta mínu.
Giggi Líney Hanna og Alvilda